..::Nýjar myndir 4 Mars:..

Við erum systurnar Camilla Dagbjört, Thelma Marín og Eva Karítas Flórentsdætur Ofur krútt!



Camilla Dagbjört kom í heiminn þann 10. maí 2004 kl:07:13 og var 2375 gr og 46.5 cm með brún augu og örlítið dökkt hár en er núna komin með mikið og flott dökkt krullað hár. Fæðingin gekk voða vel en mamma mín var gangsett á 37 viku afþví að læknunum fannst ég ekki vera að stækka nógu mikið en ég plataði þá og var miklu stærri en allir héldu og hef verið voða dugleg að stækka síðan og er mjög sjálfstæð og dugleg stelpa.
Thelma Marín kom í heiminn þann 31. október 2006 kl: 02:55 og var 2820gr og 48cm og var því aðeins stærri en stóra systir enda fékk hún að vera viku lengur í kúlunni sinni. Hún var með dökk augu og dálítið að dökku hári en núna er hárið hennar orðið skollitað. Fæðinginn hennar gekk einnig mjög vel og átti einnig að gangsetja mömmu í þetta skiptið vegna vaxtarseinkunna en þegar átti að fara að senda mömmu heim í annað skiptið vegna anna upp á fæðingardeild ákvað daman bara sjálf að drífa sig í heiminn og reyndist hún einnig stærri en áætlað var.
Eva Karítas kom í heiminn þann 13. Desember 2008 kl:05:45 og var 2980gr og 47cm semsagt þyngsta daman. Hún kom líka aðeins fyrir tíman en áætluð lending var 22 des. Í þetta skipti var mamma ekki gangsett heldur missti hún vatnið þegar hún var að klára jólagjafainnkaupin. Fæðingin gekk voða vel en mamma og pabbi mættu upp á fæðingardeild kl hálf fimm og klukkutíma og korteri seinna voru þau búin að fá fallegu skvísuna sína. Hún var með dökk augu og dökkt hár.
Foreldrar okkar heita Hrönn Jóhannsdóttir og Flórent Unnar Sæmundsson.

Við erum búin að ákveða að læsa síðunni okkar en þið sem viljið kíkja á okkur ekki hika við það að senda mömmu línu í póstinum til þess að fá lykilorðið.





Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar á með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi







Pabbi er Maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.














Ljós í myrkri, langt og mjótt
markar upphafið hjá þér.
Allt í einu ertu komin
inn í heiminn, lítill dofinn,
dregur andann hið fyrsta sinn.

Þú ert vorið, vindur hlýr
vekur hjá mér nýja kennd.
Og ég græt í gleði minni.
þú gefur mér með návist þinni
svo miklu meira en trúði ég.

Líf.
Ljómi þinn er skýnandi skær.
Líf.
Augu þín svo saklaus og tær.
Fegurra en nokkuð annað.
Áhrifin ótvíræð;
ég svíf því ég á þetta líf.

Óskadraumur ? ásýnd þín.
Ekkert jafnast á við það.
Þó mig þúsund drauma dreymi,
þessa stund ég alltaf geymi
í mínu minni ókomin ár.

Líf....






Nautið
20. apríl - 20. maí
Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. "Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?" Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.





SPORÐDREKINN
24. október - 21. nóvember

Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.




Bogmaðurinn
22. nóvember - 21. desember
Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.









Alexander Esra vinur okkar.

Alexander Helgi vinur okkar.

Aron Birgir vinur okkar.

Daníel Hagalín og Tómar Darri vinir okkar.

Daníel Örn vinur okkar.

Freyja sæta og Noah sæti vinir okkar.

Guðrún Adela frænka og Jóhann Elí frændi okkar.

Halldór Óskar vinur okkar.

Hulda Sigrún frænka okkar.

Manda Konný frænka okkar.

Munkapúkinn vinur/vinkona okkar.

Sóley Birta vinkona okkar.

Tinna Hrönn frænka og Óliver Adam frændi okkar.

Tristan Ingi vinur okkar.


















EINKARÉTTUR SMÁBARNA


Ef mér finnst það flott, þá á ég það

Ef ég held á því, þá á ég það

Ef ég næ því frá þér, þá á ég það

Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það

Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt

Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana

EF það líkist dótinu mínu, þá á ég það














Lilypie


Lilypie 3rd Birthday Ticker


Lilypie 1st Birthday Ticker

Svona er veðrið hjá okkur í Aberdeen:

The WeatherPixie

Svona er veðrið hjá ykkur á Íslandi:

The WeatherPixie




online